Þetta er víst síðan mín ;)
20.11.2006 20:58:21 / gummi89

Hættur

Þá er loksins komið að því, ég er HÆTTUR með þessa síðu, byrja

kannski með nýja eftir einhvern tíma!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.10.2006 18:02:57 / gummi89

Bloggfærsla

Jæja ég ákvað að blogga hérna loksins.

Búið að vera bara stuð síðan síðast margt og mikið búið að ske. Menningarferðin og svo auðvitað ballið með Out Loud sem var stuð.

En ég ætla að segja aðeins frá menningarferðinni.

Fimmtudagur: Lögðum að stað frá VA kl 13 og horfði maður bara á myndir á leiðinni suður, en við vorum komin suður kl 12 og þá fór maður beint heim að sofa(Y).

Föstudagur: Þá fórum við Óttar á laugarveginn til að láta teikna upp tattoo fyrir Óttar, við röltum á laugarveginum frá kl 12.30 til kl 14 en svo kom það í ljós að tattoo stofan var lokuð. Þannig að við fórum bara í kringluna til að éta. Svo kíktum við í nokkrar búðir og svona, svo komu Björn og Fannar og ég rölti með þeim síðan uppí keiluhöll þar sem við brilleruðum í keilunni. Svo var það rúnturinn með Daníel í smástund áður en maður fór heim að sofa bara.

Laugardagur: Fór með Fannari niður í kringlu þar sem Björn kom svo og slóst í hópinn. Svo komu Kata og Konný og slógust líka í hópinn;) Fórum og skemmtu okkur bara í kringlunni þangað til að við fórum að fá okkur að éta á Pizza Hut. Eftir það lá leiðin í leikhús á Footloose sem var alger snilld. Atvik ferðarinnar var á footloose þegar einn mongólíti var alveg að brillera að tromma með tónlistinni og dansa á fullu og svo þegar leikararnir fóru og hneigðu sig þá stóð hann upp og hneigði sig líka:lol: mesta snilld í heimi, þó svo að það sé ljótt að segja þetta en þá var þetta fyndið.

Sunnudagur: Þá lá leiðin bara heim á leið með smá viðkomu í bláa lóninu sem var alveg hreint ágætt bara. Var kominn heim um 12 leytið.

Ágætis ferð bara.

En já btw ég er búinn að læra eitt lag á gítarinn sem er alger snilld, lagið Bad Moon Rising með Creedence Clearwater Revival.

Ég kveð að sinni

So long suckers


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.09.2006 18:36:57 / gummi89

Loksins

Vegna fjölda (tveggja reyndar) áskoranna hef ég ákveðið að blogga hérna svona einu léttu bloggi.

Það er nú eiginlega bara ekkert að frétta af mér, skólinn og hitt og þetta bara á fullu, búinn að vera á fullu að æfa á gítarinn líka sem er ekkert nema gott mál. Ég býst við því að vera orðinn svona spilanhæfur í desember, eða allavega vona ég það.

En núna ætla ég að koma með smá nöldur um þetta skjárinn dæmi. Það er nefnilega mál með vexti að í byrjun árs eða einhvern tímann um það leiti þá gat fólk byrjað að leigja myndir í gegnum þetta dót bara með því að ýta á einn takka á fjarstýringunni. Fólk á höfuðborgarsvæðinu var eina fólkið á landinu sem gat leigt myndir í gegnum þetta, fólkið á höfuðborgarsvæðinu er oft eina fólkið í heiminum þegar eitthvað svon a nýtt kemur á markaðinn. Gefið var út að landsbyggðarfólk gæti byrjað eð leigja myndir í gegnum skjáinn í byrjunj sumars, en viti menn síðan var birt auglýsing í öllum helstu blöðu landsins að landsbyggðar fólk ætti að geta náð þessu dæmi í byrjun september, en viti menn það er kominn hér langt fram í september og ekki getum við ennþá leigt myndir af þessu helvítans dæmi. Ég persónulega vill ekki segja þessu dæmi upp í mótmælendaskyni bara útaf enska boltanum, en ef fólk er til í að segja þessu upp þá styð ég það alveg heilshugar. Svo er annað þetta digital ísland kjaftæði er ekki ennþá komið hingað austur og það átti að koma síðasta haust, hvað er málið með allar þessar djöfulsins frestanir? Ég bara spyr!

En svo vill ég benda fólki á það að ég tek niður skráningar fyrir frmahaldsskólamótið í fótbolta fyrir hönd VA, þannig að allir þeir sem eru í VA og vilja taka þátt endilega skráið ykkur hjá mér, það verða 2 karlalið og 1 kvennalið.

Endilega kvittið og ég bið bara að heilsa þangað til næst, sem verður örugglega ekkert fyrr en mjög seint bara;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 20:49:33 / gummi89

Nothing to do!

Jájá ég sit hérna fyrir framan tölvuna á þessu "yndislega" laugardagskveldi að gera ekki neitt nema að blogga. En síðustudagar hafa verið alveg hinir þokkalegustu;)

Ég skellti mér á menningarnótt um síðustu helgi og var það bara aalveg hreint magnað, hún fær allaveg 2 þumla upp frá mér;) Ég og Atli fórum í ráðhúsið og svona þar sem að Fjarðabyggð var sérstakur gestur Reykjavíkurborgar á menningarnótt. Þar voru BRJÁN kallar að spila nokkur lög og svona. Skelltum okkur svo niður í miðbæ þar sem við hittum Agnesi. Hún hékk með okkur allann daginn og allt kvöldið líka;) Já við fórum og horfðum á bestu hljómsveit í heimi í dag;) Jeff Who? og var það alveg geðveikt þegar þeir spiluðu Barfly, vá hvað það var mikil snilld. Svo fórum við bara og röltuðum útum allt. Mestu vonbrigðin við þessa blessuðu menningarnótt var LT United, þeir sem sungu We are the winners í júróvísíon, við fórum og horfðum á þá og vorum að bíða eftir laginu en neinei þá spila þeir það ekkert fyrr en um leið og flugeldasýningin er þannig að við misstum af því lagi, ASNAR. Flugeldasýningin var þokkaleg og fór maður bara heim fljótlega eftir hana.

En já núna er skólinn byrjaður og er það bara hið besta mál, er á grunndeild raf og er bara nokkuð sáttur með stundatöfluna mína(Y) Fæ að sofa alveg til 12 á miðvikudögum, ahhh ljúft. Svo fékk ég líka pláss í tónskólanum, er að fara að læra á gítar, alger snilld.

Í gær var svo haldið lokahóf BN'96 og lukkaðist það bara nokkuð vel. Menn skemmtu sér konunglega og fengu allir viðukenningar. Ég fékk viðukenninguna Júþ player of the year, sem ég er nú bara nokkuð sáttur með. En já svo var farið í það að semja BN lag og heppnaðist það bara nokkuð vel. Eftir lokahófið fórum við Jóhann, Ari, Einar og Rúnar á Reyðarfjörð þar sem það var spilakvöld hjá Írisi og var bara alveg ágætt þar;) Vaknaði reyndar í morgun með nagglalakk á nöglunum og reyndar úti um alla putta;)

En ég ætla nú að fara að hætta þessu bulli og fara að einbeita mér í því að láta mér leiðast hér heima;)

Kærlige hilsen til alle

- Gvendurinn


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 15:04:02 / gummi89

Verslunamannahelagarblogg

Jæja núna segja sumir jess loksins blogg frá honum á meðan aðrir segja ohh eða af hverju hættir þessi ekki bara að blogga. En hvað sem allir segja þá ætla ég að blogga núna um eina af bestu helgi í lífi mínu. Just enjoy. :D

Föstudagurinn: Þá kom maður í bæinn um hádegið eftir útilegu í Atlavík með "gamla" settinu. Maður lét sér bara leiðast þangað til um 5 leytið þegar setningin byrjaði. Maður var búinn að bíða í heilt ár eftir því að geta skemmt sér með Gunna og Felix. Setningin var nokkuð góð bara en aðal skemmtunin átti bara eftir að ganga í garð, Dj Páll Óskar. Maður hélt bara heim á leið eftir seetninguna og fékk sér að borða áður en maður fór heim til Björns. Þar voru nokkrir en svo um 11 leytið héldu flestir í átt að íþróttahúsini til að skemmta sér með Palla. Það var nú bara alveg hreint geðveikt á þessu balli. Eftir ballið fórum við Björn og einhverjir aðrir niður í Nesbæ og fékk Björn sér sviðakjamma að borða:lol: Þegar Bj0rn var búinn að borða héldum við fyrir utan Egilsbúð þar sem það voru nokkrir að ná sér niður eftir Í Svörtum Fötum ballið, maður hélt nú bara fljótlega heim.

Laugardagurinn: Vaknaði eldhress um 11 leytið og skellti mér strax í hressandi sturtu. Fór svo bara straxx eftir hana niður á gervigras að horfa á einhverja firmakeppni í fótbolta, ég var nú samt ekki búinn að vera lengi þar þegar Höskuldur kallaði í mig og fékk mig til að dæma einn leik. Það var nú ekker mál. Svo fór maður bara heim og þar var frændfólk mitt frá Seyðisfirði mætt á svæðið og vil ég bara þakka þeim fyrir komuna um helgina:D Um 2 leytið fór ég svo með frændum mínum tveim niður í bæ þar sem dagskráin var á fullu. Þar stóð nú samt eitt uppúr, brunaslönguboltinn þar sem Brjánar menn kepptu á móti Skímó, það er ekkert skemmtilegra að sjá fullorðna karlmenn leika sér með brunaslöngu. Alger snilld. Svo þegar hann var búinn þá fórum við bara heim að borða og svona. Um kvöldið skellti ég mér til Björns þar sem nokkrir voru komnir saman. Svo skelltu allir sér bara niður í bæ um 11 leytið, sumir fóru á ball, aðrir fóru og héngu fyrir utan Egilsbúð en aðrir fóru og ældu og ældu fyrir utan Samkaup á beikk einum, sá hinn sami verður ekki nafngreindur. :lol: Svo fór ég bara og hitti fólk fyrir utan Egilsbúð þegar Skímó ballið var búið en fór heim stuttu eftir það.

Sunnudagurinn: Vaknaði um 12 leytið, fór í sturtu og svona, fékk mér svo að éta og skellti mér síðan niður í bæ um 3 leytið. Það byrjaði síðan að rigna um leið og ég fór út, en það stytti nú sem betur fer upp fljótlega. Ekker merkilegt var að gerast í bænum þannig að ég skellti mér bara á Speedwayið sem var reyndar ekki að gera sig þannig að ég fór bara heim og beið eftir kvöldinu. Tíminn leið og leið og loksins var komið að varðeldinum og var hann alveg frábær þar sem að hann var ekki tendraður vegna roks. Gunni og Felix og Hlynur Ben voru alveg hreint frábærir þarna en Laddi var ömurlegur, alltaf með sitt sama prógramm, Laddi þú mátt alveg fara að búa til nýtt prógramm ég skora á þig. Ég fór nú bara á rúntinn með Atla og Dodda þega Sálin steig á svið. Sá rúntur enntist nú ekki lengi því Doddi fór fljótlega heim. En ég og Atli röltuðum bara í bænum og var þar mikið líf og fjör. Maður spjallaði nú við alveg fullt af fólki og var maður sofnaður kl 9 á mánudagsmorgninum. Svo kom Björn og vakti mig um 12 leytið og fór ég í sund með honum, Óskari og minni yndislegu systur Guðný.

En já ég vill bara þakka öllum sem ég hitti um helgina fyrir alveg frábæra helgi og bendi öllu á að það er hægt að nálgast myndi frá Neistafluginu inni á www.pose.is og www.ponks.tk.

En ég ætla bara að ljúka þessu bloggi og ætla að reyna að blogga eitthvað af viti í vetur, þá getur Atli haldið áfram að kommenta hjá mér.
 
Sæl að sinni bara
- Gummi


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 22:24:30 / gummi89

Á þessi síða að halda áfram?

Ég er svona að velta því fyrir mér hvort ég eigi að halda áfram að blogga hérna? Það er nú kominn tími samt á eitt blogg hérna, get samt ekki lofað því að það verði langt!

En það er búið að vera nóg að gera hjá mér það sem af er sumri. Það er búið að vera allt á fullu inni í frystihúsi og svo er maður búinn að vera að spila á fullu með BN'96 og það er einmitt leikur núna á mánudagskvöldið kl 20.00 og hvet ég alla til að mæta að sjálfsögðu. Svo er LungA núna á laugardaginn og ég efast um að ég mæti því að það er klikkaður sýslumaður þarna á Seyðisfirði, hann/hún hækkaði aldurinn til að komast inná ballið, úr 16-18 ára!!! En ef maður fær far á Seyðisfjörð þá færi maður auðvitað bara til að hitta fullt af fólki.

En ég ætla nú að fara að hætta þessu "mega"bloggi mínu. En ég ætla nú að sðyrja að einni spurningu áður, Á ÉG AÐ HALDA ÁFRAM MEÐ ÞESSA SÍÐU? ER EINHVER SEM LES ÞESSI BLOGG MÍN?


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.06.2006 21:36:39 / gummi89

Sjómannadagurinn á morgun;)

Já sjómannadagurinn verður á morgun og verður hann tekinn með pompi og prakt eins og vanalega hér í bæ.

Ég fór á árshátíð SVN í gærkveldi og var þessi árshátíð bara allt í lagi sko. maturinn var alveg frábær og ekki var veislustjórinn verri, en það var hann Björgvinn Franz Gíslason. Sumir voru orðnir soldið fullir þarna á vorðhaldinu. Ásgeir nokkur Harðarson var orðinn alveg blindfullur og gat hann varla labbað nema að styðja sig við einhvern. En á árshátíðinni söfnuðust saman allir þeir sem vinna úti á sjó, Pólverjarnir, fiskiðjuverið, bræðlsan, skrifstofan og fleiri.

Núna er HM loksins byrjað eftir 4 ára langa bið. Ég ætla að halda með Spánverjum og Svíum. En ég tel Brassana og Hollendinga sigurstranglega og svo koma Frakkar þar rétt á eftir.

Svo er náttúrulega þjóðhátíðardagur okkar Íslendinga um næstu helgi. Hvað skal maður gera þá?

Núna veit ég ekkert hvað ég á að bulla meira þannig að ég ætla að hætta þessu bulli.

Sæl að sinni ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

03.06.2006 22:42:15 / gummi89

Hæhæ

Jæja blogg time á mér núna.

Það hefur nú ekki verið mikið að gerast hjá mér núna síðastliðna viku eða vikur. Ég hef nú bara verið að vinna á fullu og sofa þess inná milli. En já ég vara víst að keppa fyrir norðan í dag á móti Þór, við rétt töpuðum með mjög litlum mun, aðeins 7-3. Það má samt geta þess að þetta lið hefur ekkert æft saman!!!.

En hér kemur smá saga frá einu sem gerðist á leiðinni norður. Við vorum staddir svona sirka 5 km frá Jökulsárbrúnni þegar hægra frammhjólið fór út í mölina í vegkanntinum og dróg dekkið allann bílinn með sér niður, við vorum sérstaklega heppnir að hafa ekki olltið!!!. Ég sat þarna bara í rólegheitunum að lesa Séð og Heyrt þegar bíllinn byrjaði að halla óvenjumikið og svo byrjaði hann að hristast óvenju mikið líka, svo leit ég út um gluggann og þá vorum við bara komnir niður af veginum. Ussuss ekki gott það. Þá má geta þess að bæði dekkin hægra megin sprungu og þurftum við að húkka okkur far til Akureyrar.

Bara svona að segja frá þessu.

Sjáumst bara.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 01:42:49 / gummi89

Kominn tími á blogg;)

Já ég ætla að blogga smá hérna á mánudagskveldi. Ég er svona rétt að vona það að það komi í ljós á morgun hvar ég muni vinna í sumar, annað hvort hjá SVN eða hjá bænum.

En já helgin var alveg þrusufín sko.

Á föstudagskveldinu hékk maður bara heima og hafði það notalegt uppi í sófa að horfa á sjónvarpið og nokkrar DVD myndir bara, ekkert annað að gera fyrst maður náði ekki að redda sér fari á ball á Eskifirði með Köngulóabandinu, er svosem alveg feginn að ég náði ekki að redda mér fari, þetta er ein leiðinlegasta ballhljómsveit á Íslandi og örugglega í Evrópu, en ball er nú samt alltaf ball.

Á laugardeginum vaknaði ég bara eld ferskur kl 10. Fór að þjálfa 8. flokk í fótbolta, sem var reyndar mega stuð, mættu 3 í fyrri árgangnum en svo 4 í þeim seinni, þetta var sem betur fer síðasti laugardagurinn sem ég þarf að þjálfa þarna. Svo fór ég bara heim kl hálf 1 en fór svo í Ö1 kl 1. Þetta var soldið niðurdrepandi en það sem bætti það upp voru öll hléin sem voru gerð. Svo hékk maður bara heima og horfði á Júróvísíón með mömmu og pabba, JEIJ. Auðvitað unnu Finnar, sem betur fer bara. Við eigum bara að senda einhverja fáránlega hljómsveit í Júróvísíón á næsta ári, eða bara að senda Out Loud og klæða þá upp í einhver asnaleg föt, það myndi slá í gegn. Svo fór maður heim til Gísla og fékk sér smá sopa þar, en svo færðis leikurinn heim til Sæunnar, þetta voru bæði alveg þrusu partý.

Sunnudagurinn var mjög "skemmtilegur". Þar sem að ég var í Ö1 allann daginn. En svo um kvöldið fékk maður þær sorgarfregnir að Pétur, sem ég þekkti ágætlega mikið, væri fundinn, látinn :( Hvíldu í friði Pétur minn. Þú hefur átt að gera eitthvað merkilegt þarna uppi.

En já ég ætla bara að enda þetta blogg núna. Endilega kvittið við þessu bloggi.

Hittumst heil.
- Gummi

P.s Veit einhver hvenær næsta 16 ára ball er??? Svarið í comment.

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.05.2006 23:15:46 / gummi89

Jess;)

Jæja þá er komið að því. Skólinn loksins búinn, allavega prófin, það á eftir að slútta þessu veseni formlega. En allavega vara lokaball VA haldið núna síðasta föstudag og heppnaðist það bara mjög vel. Og voru þar ýmsir sem lentu rækilega í góðum málum. Jóhann Óli var flottur á því, Hjálmar, Jóhannes og einnig var hann Björn Ágúst nettur á því (eins og reyndar á ÖLLUM böllum) :lol: En það vantaði Sigfús til að syngja með Out Loud sem spiluðu og trylltu lýðinn, en var það einhver gaur úr 3 amigos sem hljóð í skarðið og var hann hreint út sagt magnaður (Sigfús er það líka). En já hann Jóhannes var víst orðinn alveg dofinn í tungunni eftir hana Önnu Steinunni, frænku mína, frá Reyðarfirði.

En já ég ætla að segja frá þessu geðveika kveldi. Fyrst hékk maður bara hér heima að búa sig undir leiðinlegt ball fyrst maður þyrfti að vera edrú. En svo hringdi hann Björn í mig og sagði mér að kíkja til sín, ég fór og greip 2 bjóra sem ég átti ennþá eftir frá því um seinustu helgi. Þegar maður var mættur til Bjössa færði hann mér þær gleðifréttir að hann ætlaði að lána mér eina kippu af Tuborg, sem var geðveikt nice. Svo drakk maður bara heima hjá Birni til um kl korter í 12, þá færðum við okkur yfir til hennar Helenu. Þegar klukkan var 1 þá fórum við og löbbuðum á ballið. Ég og Björn stútuðum heilli kampavínsflöku á leiðinni niðureftir, auk þess að ég stútaði 2 af Tuborg ;). Svo þegar maður var loksins kominn á ballið, þá var eitt það fyrsta sem maður sá, það var hún Gunna íslenskusesunautur í 10. bekk ;) og var það mjkög skemmtilegt að rekast á hana. Svo fór maður bara og dansaði af sér lappirnar, enda var ég að drepast í löppunum eftir ballið og daginn eftir.

Svo ætluðum við Björn að skella okkur til Seyðisfjarðar í dag með Matta, en svo hrindi hann í Björn rúmlega hálf 12 og sagðist ekki fá bílinn hjá pabba sínum. Þannig að ég og Björn enduðum bara í því að horfa á Dumb and Dumber og Wedding Crahsers. Það var nú bara helvíti nett sko.

En ég held ég fari bara að enda þetta kjaftæði hérna og endi hérna.

Sjáumst bara í stríðunu

- Gummi

P.s Atli!! Þú varst flottur á ballinu, fyrir utan það að þú fórst ekki uppá svið og söngst:(. Auk þess vill ég þakka Out Loud fyrir alveg hreint þrusu ball:D.


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 20:37:44 / gummi89

Prófavika, JEIJ

Já það er kominn tími á blogg. Ég sit hér fyrir framan tölvuna á föstudagskvöldi og hef ekkert að gera. Marr er svona að vona að það hringi einhver í mann og segi manni frá einhverju að gera.

En annars hefur ekkert verið að gera undanfarið. Marr hefur verið að læra undir próf og horfa á sjónvarpið mestmegnis. Svo er það bara næsta vika eftir, 5 próf og svo er skólinn búinn. Þá tekur bara við vinnan, ég ætla að reyna að vinna eins og brjálæðingur í sumar svo ég eigi einhvern pening. En svo hvet ég alla Arsenalmenn til að mæta niður í Nesskóla þann 17. maí til að horfa á Arsenal-Barcelona á súper-breiðtjaldi, en nánar að því síðar. Ég ætla að setja inn hér smá lista sem ég vill að þið svarið um mig.

Kveð að sinni, sjáumst í stríðinu.

- Gummi

Er ég....

Ljótur?
Vinalegur?
Þögull?
Hávær?
Feiminn?
Skrýtinn?
Sjálfselskur?
Villingur?
Brjálæðingur?
Sætur?
Vondur?
Heimskur?
Vinur?
Meira en vinur?
Treystandi?
Leiðinlegur?
Fallegur?
Vitur?
Ruglandi?
Fyndinn?

Spurningar ::


Síminn minn er ?
Er ég á föstu ?
Hvenær á ég afmæli ?
Hver er besti vinur minn ?
Hvar hittumst við ?
Hefur þig einhvern tímann dreymt um mig ?
Lýstu mér í 3 - 5 orðum?
Ef þú mættir spyrja mig að hverju sem er , hverju myndiru þá spurja mig að ?

 Persónulegar upplýsingar ::

 
Ég er _(td hressasti)___ strákur sem þú veist um ?
Mynduru vilja kyssa mig ?
Hefuru einhvern tímann verið hrifinn af mér ?

 

Bara svona að láta fólk vita að ég samdi ekki þennann lista, ég tók hann af annari síðu.


» 16 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 20:25:07 / gummi89

Lehmann, Simply the best!!!

Já sælt verið fólkið, ég ætla nú bara að hafa þetta stutt að þessu sinni og tileinnka þetta blogg honum Jens Lehmann. Hann Jens Lehmann kom Arsenal í úrslitaleik meistaradeildarinnar og er því orðin goðsögn á meðal Arsenal-aðdáenda. Já en semsagt hvet ég alla sem vetlingi geta valdi að horfa á sýn kl 18-21 á miðvikudaginn 17. maí.

 

Já þetta er semsagt meistarinn sjálfur, Jens Lehmann.

En já segji þetta bara gott núna, sjáumst bara í stríðinu.

-Gummi


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2006 17:35:37 / gummi89

Geðveik vika ;)

Já ég ætla að blogga núna!!

Það hefur nú ekki mikið verið að gerast hjá mér frá því að ég bloggaði síðast, en ég ætlæa að reyna að pússla einhverju saman í blogg. Já ég var einn heima frá mánudeginum til fimmtudagsins, pabbi þurfti að fara suður til læknis og auðvitað þurftu kerlingarnar á heimilinu að fara með. Marr gerði nú mestlítið á þessum tíma, horfði bara á sjónvarpið og hékk á msn, þar sem að það var ekkert annað betra eða skárra að gera. En svo lífgaðist uppá mann á þriðjudagskvöldið, en þá komu Sverrir, Hafþór og Daníel Geir og horfðu með mér á AC Milan-Barcelona, sem endaði 0-1 fyrir Barcelona og var maður bara nokkuð sáttur með það. Eftir leikinn kom Björn og vorum við Björn og Daníel bara að spjalla um lífið og tilveruna, eftir að Daníel fór þá fór maður heim til Jóhanns og hitti þar á Jóhann, Hafþór og Steina, en svo kom Gísli og bættist við. En svo á miðvikudeginum kom Björn og við fórum bara að horfa á The Animal, þar hló Björn alveg að einu atriði, "don't ypu remember the animal?". En svo þegar hún var búin fórum við bara að gera okkur klára fyrir Arsenal-Villarreal sem var að fara að byrja. Sverrir og Hafþór komu líka og horfðu á leikinn sem endaði 1-0 fyrir Arsenal, sem er bara snilld því þeir eiga mikla möguleika á því að komast í úrslitaleikinn í meistaradeildinni ;). En svo á fimmtudeginum kom svo bara settið og stelpurnar heim, á fimmtudeginum byrjaði líka skólinn aftur. JEIJ. :D En núna um helgina hefur maður bara verið að glápa á sjónvarpið og læra undir Grettissögupróf sem er á morgun. :D. En pælið í því, það eru bara 5 venjulegir skóladagar eftir af skólanum, svo koma þessi leiðindarpróf.

En hafið þið ekki séð þættina My name is Earl? ef ekki þá bara endilega að hafa samband og ég læt ykkur fá þessa þætti. Þetta eru einhverjir þeir bestu gamanþættir sem hafa verið sýndir á Íslandi.

En núna ætla ég að enda þetta "skemmtilega" blogg mitt um geðveika viku í mínu lífi.

Við sjáumst bara í stríðinu.

- Gummi

P.s eitt svona í lokin, hvar á maður að vinna í sumar? :S


» 8 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 00:30:44 / gummi89

Páskarnir eru núna já!

Já það eru víst páskar :S. En já marr er nú bara búinn að vera að dandalast, svo marr vitni í Magga, á Seyðisfirði. Ég skellti mér í 3 fermingar með frændfólki mínu á Seyðisfirði. Það var nú samt eikkað lítið að gera þarna á sey, marr hékk bara í Fifa 2005 sem var nú bara hin besta skemmtun, einnig held ég að ég hafi horft á 2 myndir hvert kvöld, alls 10 myndir sem er nú nokkuð gott. En svo á föstudagskvöldið þegar við vorum búin að éta fórum við inni í stofu, ég og frændi minn. Þá stóð einhver Pólsk kona fyrir utan húsið og glápti bara inní stofuna þar sem við sátum, hún stóð þarna í um 45 mínútur. Svo kom í ljós að þetta er GEÐVEIK kerling. Þá er komið að aðalatriði Seyðisfjarðarferðar minnar. Ég fór og tók þátt í fjölskyldumóti í fótbolta. Það var alger snilld, allir karlmenn eldri en 16 þurftu að keppa í sjógöllum, og svo var það eitt í viðbót, ef lið komst yfir með tveimur mörkum þá þurfti að binda 2 saman í liðinu og svo ef liðið komst í þriggja marka forystu þá þurfti að binda 3 saman og svo framvegis. Við frændi minn áttum að mínu mati tilþrif mótsins, en þá vorum við bundnir saman en náðum samt að skora glæsilegt mark. En svo kom marr bara heim um hálf 2 leytið á páskadag og fór strax í það að leita af páskaegginu sem mamma og pabbi voru búin að fela, jeij jeij húrra fyrir þeim. Svo um 3 leytið voru það tertur, jammí.

Svo þarf marr víst að fara að læra undir Grettissögu próf í vikunni:evil:, þæki? Eða á marr bara að mæta og taka þetta djöfullsins próf ólærður?

En ég ætla að hætta þessu kjaftæði í bili.

Sjáumst bara í stríðinu

- Gummi


» 8 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 14:59:43 / gummi89

Langt síðan síðast

Nei komið sæl og blessuð börnin góð. Hvað segiði þá? Já af mér er eiginlega ekkert að frétta eins og vanalega, en það er “ball” í kvöld fyrir 8 bekk og uppúr, kvet alla til að mæta. Já en annars þá er Arsenal komið áfram í undanúrslit í Meistaradeild Evrópu og mæta þar Villareal.

En já ég skellti mér á Cry Baby í gærkveldi og var það hrein snilld, bara vorkenni þeim sem ekki fóru á þetta leikrit/söngleik. Óskar, Bjössi, Doddi og bara flestir leikararnir voru alveg frábærir og voru nánast alveg eins og þau sem léku í myndinni. Svo var komið að næstsíðasta atriðinu og þar komu öll þau sem léku í leiktritinu út í sal og fengu sér einn til að dansa við. Ég var svo heppinn að hann Bjössi dróg mig upp úr sætinu og byrjaði að dansa við mig.

Skólinn er búinn að vera fínn þessa vikuna þar sem að tímarnir voru styttir um helming og þar af leiðandi var skólinn alltaf bara til hádegis hjá mér, allt útaf þessu Sprota kjaftæði.

Svo er bara komið páskafrí núna. Hvað ætla menn að gera í páskafríinu? Allir að kommenta á það. Ætli ég reyni ekki að lesa eina bók eða svo fyrir íslensku.

En annars ætla ég að enda þetta blogg á einni mynd af Birni þegar hann fattaði til hvers tólið þarna niðri væri. Enjoy.

 

 

Sjáumst bara í stríðinu

- Gummi


» 9 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2